|
01.05.2006 18:53:47 / ingiv
Í tilefni þess að ég er að flytja búferlum ákvað ég að flytja
bloggið mitt yfir á www.ivg.blog.is Ekki það að einhver skoði þetta
hjá mér
4
»
11.04.2006 19:15:32 / ingiv
Já ég fór í prufurnar á Gauknum á miðvikudaginn síðastliðinn og
skemmst frá að segja var ég beðinn um að mæta aftur á fimmtudeginum
í áframhaldandi prufur ásamt u.þ.b. 16 öðrum söngvurum. Ég hefði
aldrei getað trúað því hvað það fylgir því mikil skriffinnska að
sækja um stöðu í einu skitnu sveitaballabandi. Umsóknin var einar
20 síður á þykkt og ekki skánaði það þegar maður fékk samninginn í
hendurnar, 30 síður eða eitthvað og ekkert nema lögfræðital, Á
ENSKU! Takk fyrir mig Skjár einn að hafa dælt yfir okkur öllum
þessum amerísku lögfræðiþáttum í gegnum tíðina, veit ekki alveg
hvernig maður hefði annars átt að geta unnið úr þessum upplýsingum.
Nú, til að bæta gráu ofan á svart þá vorum við beðin um að senda
upplýsingar um ALLT sem við höfum gert í bransanum. ÉG Á EKKERT
SOLEIÐIS! Ég er náttúrulega svo mikill slugsi þegar kemur að því að
halda upp á gömul plaköt og auglýsingar, úrklippur og þess háttar,
þannig að ég er búinn að vera sveittur við það að grafa upp allt
sem ég hef getað komist yfir til að geta sent það út til þess að
líta ekki út fyrir að vera nýskriðinn útúr karókígræjunum. Góðir
menn hafa líka lagt mér lið með því að skrifa virkilega falleg
meðmælabréf mér til stuðnings og kann ég þeim bestu þakkir fyrir.
Nú verður maður bara að sitja "rólegur" og bíða eftir því hvort
maður komist áfram í 50 manna úrtakið í L.A. Kemur í ljós eftir 3-4
vikur. Hvað segið þið, haldiði að kallinn komist til L.A.??
4
»
21.03.2006 09:29:56 / ingiv
fyrst að búið er að ráða bót á kommentakerfinu hér á blog.central
þá get ég nú svosem haldið þessu áfram......... Úr strumpalandi er
allt fínt að frétta, vorum nú á dögunum að festa kaup á okkar
fyrstu íbúð í Memphis norðursins, Hafnarfirði. Jibbí-kóla! fáum
afhent í maí og er mikill spenningur fyrir því svo um munar.
Kallinn bara helvíti flottur á því að láta loksins verða af því að
verða stór og skulda einhverjar fleiri fleiri millur eins og sæmir
fullvaxta íslendingi.
Vegna fjölda áskorana ákvað ég að ráða mig aftur til starfa í
Tónabúðinni í Skipholtinu og kann ég bara mjög vel við það. Allir
að kíkja og kaupa eitthvað dýrt!!
Annars hef ég verið að velta einu fyrir mér í soldinn tíma, Eru
bensíndælur karlkyns? ég meina, jú ég get skilið það að þetta
vefjist fyrir mönnum, einhverjar slöngur sem sprauta gumsinu út úr
sér. Ekki mikið kvenlegt við það, en kommon! stuðar mig alltaf
jafnmikið þegar ég fer á sjálfsafgreiðslustöð og skjárinn sýnir
"DÆLA 3 ER TILBÚINN"!!!!!!!!!!!!!! Hvernig er farið fyrir
íslenskukunnáttu landans, ég meina það, DÍSÖS KRÆST!!!!
4
»
19.02.2006 16:40:49 / ingiv

Ég er búinn að
gefast upp á að reyna að eyða út rusl-commentum og hef því ákveðið að
hætta öllum færslum hér.
Ég kem þó til
með að setja upp slóð á nýtt blogg þegar og ef ég set það upp
aftur
over and
out
4
»
04.01.2006 09:32:41 / ingiv
Jæja, ég get ekki verið minni maður en Kiddi og treð því inn hér
örfáum spurningum sem ég vona að sem flestir svari því ég tel að
svörin geti gert mér kleyft að þroskast og verða betri manneskja en
ég er í dag............................ Eða bara af því að það gæti
verið forvitnilegt. Koma nú! Allir saman! Kommenta
svo.
4
1. Þú segir mér eitthvað handahófskennt um mig
2. Þú segir mér hvaða lag minnir þig á mig
3. Þú segir mér hvaða bragð minnir þig á mig
4. Þú segir mér eitthvað sem meikar bara sens fyrir þig og mig
5. Þú segir mér fyrstu ljósu minninguna þína af mér
6. Þú segjir mér á hvaða dýr ég minni þig
7. Þú spyrð mig að einhverju sem þú hefur velt lengi fyrir þér um
mig
»
03.01.2006 18:13:08 / ingiv
Já gott fólk! Nú eru áramótin gengin um garð með tilheyrandi
sprengingum og látum. Fórum til múttu og pápa í mat um kvöldið og
svo var haldið upp í Æsufell að glápa á skaupið og fylgjast með
herlegheitunum, skaupið var fínt í ár þó fannst mér Björgvin Frans
afgerandi bestur. Þegar mestu lætin voru búin var kominn tími á að
hafa sig til fyrir átök næturinnar, á Amsterdam skyldi haldið að
trylla lýðinn! Skemmst frá því að segja þá var nú ekki mikið líf í
bænum fyrripart nætur. Klukkan var farin að nálgast 4 þegar við
sáum okkur knúna til að halda á svið til að reyna að koma dæminu í
gang. rembdumst eins og rjúpan við staurinn að halda lífi í
glæðunum framanaf, Enduðum að vísu með pakkað hús og megastuð til
klukkan hálf átta um morguninn.
Víkjum nú að öðru sem er ekki alveg eins skemmtilegt. Fór með
fjölskylduna út að borða á ónefndum kjúklingastað í borginni. Hef
til þessa haft góða reynslu af fyrrtéðum matsölustað en eki var nú
svo í þetta skiptið. Við komum inn og pöntum okkaur "þetta
venjulega" þar sem það hefur ekki klikkað hingað til. Fengum
"matinn" í hendurnar og hugsuðum okkur gott til glóðarinnar. Fyrsti
bitinn hhefði átt að renna ljúflega niður, en honum fylgdi
sérkennilegur keimur, svona eins og af brenndu sorpi eða hér um
bil. Skemmst frá að segja skiluðum við þessum gallagripum og fengum
nýja í staðinn. Jæja, hugsaði ég, þettta getur nú alltaf komið
fyrir, sérstaklega þegar mikið er að gera. Taka tvö: gersamlega
mislukkað. Bragðaðist að vísu soldið betur, en hinsvegar hefði
úldinn skósóli líklega bragðast eins og dýrindis nautalund eftir
fyrri skammtinn. misstum samt endanlega matarlystina þegar við
áttuðum okkur á því að "flugan" sem við vorum að berja frá okkur
yfir borðinu var í raun aldrei sú sama og í raun og veru ekki
fluga, heldur hhveitibjöllur sem sveimuðu þarna yfir öllu. þá
fannst okkur nú nóg komið og fórum. Sórum þess svo dýran eið að
þangað myndum við ekki koma aftur. Leiðinlegt, því þetta var nú
einu sinni alltaf í lagi.
Oh well,
Lifið heil!
4
»
25.12.2005 16:34:50 / ingiv
Jæja, þá er hátið ljóss og friðar gengin í garð í öllu sínu veldi.
Fórum í mat til tengdó í gær og snæddum grjónagraut í forrétt og
hamborgarhrygg (já hamborgar-hrygg, veit ekki alveg hvernig þessi
hamborgarAhryggur bragðast og er ekki viss um að mig langi til
þess.) Pakkaflóðið var gífurlegt og mátti vart á milli sjá hver
fékk fleiri pakka börnin eða gamla fólkið, t.d. fékk undirritaður
Playstation vélina sem óskað var eftir (mikið sem ég dýrka konuna
mína um þessar mundir fyrir það), Rúnna Júll í bókaformi (hlakka nú
soldið til að glugga í hana í góðu tómi) og margt fleira sem væri
of mikið til að telja upp hér. Og jú, Takk fyrir mig Ingvar fyrir
DVD myndina, kem pottþétt til með að setja hana á geislann við
fyrsta færitæki. Allavega vona ég að allir hafi haft það sem
allra best yfir hátíðarnar og við sjáumst hress og kát á nýju ári.
4
»
22.12.2005 00:26:29 / ingiv
og alltof mikið að gera. Er að vinna langt fram á kvöld dagana fram
að jólum og get því lítið sem ekkert gert á meðan. Skrítið samt
hvað maður er latur samt að nýta þann litla tíma sem maður á til
aflögu. Ætli það séu til stuðningshópar fyrir svona fólk, L.A. (
Lazys Anonymous). Nei hugsanlega ekki.
Marta mín er búin að gefa það í skyn að ég fái Playstation 2 í
jólagjöf og ég er náttúrulega í skýjunum með það allt saman.
Vandamálið er það að ég get ekki ýmindað mér hvernig ég get toppað
þá gjöf (verð alltaf að gera betur og toppa).
Eins og áður segir þá er ég að vinna í Tónabúðinni öll kvöld fram
að jólum og hhvet ég hérmeð alla lesendur til að mæta í Tónabúðina
geðþekku að Skipholti 21 og kaupa eitthvað rosalega dýrt til að
hífa upp söluna svo að hann Pálmi sjái sér fært að bæta við
starfsmanni þ.e.a.s. mér. Allt útlit er fyrir að sú verði ekki
raunin og ég verði frá að víkja eftir áramót :-(
en á glaðlegri nótum, Bergur Geirs, Pétur Örn, Jónbi úr
BreinPolice og ég á Amster á gamlárskvöld. Be there or be
kassalagaður
Gleðileg jól til sjávar og sveita,
4
»
12.12.2005 18:09:23 / ingiv
»
12.12.2005 00:06:51 / ingiv
Jæja, nú er maður loksins kominn með tengingu heima við, og kominn
tími til! Fór með félögunum í Tónabúðinni á jólahlaðborðið á
Lækjarbrekku í kvöld í boði Tónabúðarinnar ásamt mökum. skemmst frá
því að segja að það var frábært og meiriháttar og kann ég Pálma og
Jóni bestu þakkir fyrir mig og mína. Eftir matinn var haldið í
leikhús að sjá Jólaævintýri Hugleiks í Tjarnarbíói, Jólasaga
Dickens staðfærð yfir á íslenska baðstofu einhhverntímann á 19.
öld. DÍSUS KRÆST! hvað þetta var æðisleg sýning........... fyndin
með endemum og flott músík,16 stjörnur hið minnsta, mæli eindregið
með henni.
4
»
26.10.2005 10:02:06 / ingiv
Búin að vera botnlaus vinna hjá mér síðustu vikurnar þannig að ég
hef ekki alveg verið að standa mig í að blogga, biðst ég hér með
innilega afsökunar á því. Bjóst bara ekki við því að einhver tæki
eftir því. Eins og Ingvar benti réttilega á þá er Tónabúðin flutt í
Skipholt 21 og er ég því ekki lengur á Rauðarárstíg lengur.
Nóg að gera hjá Sixtís þessa dagana. Ferðuðumst til Hvammstanga og
Sauðárkróks um síðustu helgi, í stuttu máli sagt briiljant helgi
hvað stuðið varðar en GVUÐMINNGÓÐUR hvað það var kalt. Annars er
ósköp lítið að gerast í mínu lífi þessa dagana annað en vinna og
spilerí. Ég á mér ekkert líf...................................
tja, jú kannski smá.
C ya
4
»
26.08.2005 08:59:30 / ingiv
Góðar stundir, vildi bara vekja á því athygli að ég hef ráðið mig
til skamms tíma í Tónabúðina, Rauðarárstíg og er öllum bent á að
láta sjá sig og kaupa eitthvað stórt af mér
jibbí kóla
4
»
29.07.2005 10:00:19 / ingiv
Jæja, loksins drulllast maður til að skrá eitthhvað inn á bloggið.
Ég er búinn að vera sambandslaus við umheiminn í soldinn tíma, með
enga internettengingu heima og ekki hangir maður á kaffihúsum alla
daga. anyways, svona er það nú bara.
Annars er ekkert nýtt að frétta, platan er enní vinnslu og miðar
bara vel. Erum á leiðinni norður í land að spila um helgina, Kántrí
á lau. Akureyri á sun.
pís át
4
»
01.07.2005 10:14:19 / ingiv
Er á leiðinni á Akureyri að spila. verður án efa mega stuð og
fílingur on the side
4
»
01.07.2005 01:17:56 / ingiv
Var að koma heim af tónleikum lífs míns. Fór að sjá Duran Duran í
Egilshöll í kvöld og get með sanni sagt að ég hef ekki verið jafn
agndofa á ævinni. Sándið, ljósin og spilamennskan eins og hugur
manns, svo ekki sé nú talað um framkomuna, Guð minn góður! Ég er
búin að fara á ferna tónleika í ár, Deep Purple og Pink í
Laugardalshöll annarsvegar og Iron Maiden og Duran Duran í
Egilshöll og þeir síðustu voru betri en hinir til samans. Ekki þó
svo að skilja að hinir tónleikarnir hafi verið slæmir, þessir voru
bara alveg málið
er farinn að sofa í sæluvímu.
"This is planet Earth!"
4
»
Síður: 1 2 3
|